Hestaborg.com


Heim
laugardagur, 28 janúar 2012
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Rćktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síđunni
Stjórnandi
Hafđu samband / Contact
low_3stur_14_nov06.jpg
Blika og Sigurey fylfullar viđ Framherja
Skrifađ af Elka   
mánudagur, 19 september 2011

Við heilluðumst af þessum ungfola í vor og fórum með tvær hryssur undir hann um leið og honum var sleppt í hólf. Því miður var hann sleginn í skaufann og því kom í ljós við sónarskoðun að hann náði ekki að klára sig af í hryssunum. Eftir meðhöndlun og loksins sæðingu var hægt að fá hryssur fyljaðar og voru tvær af okkar hryssum í þeim hópi. Blika frá Bakkakoti og Sigurey frá Miðsitju eru fylfullar við kaupa og það verður spennandi að fá spriklandi folöld næsta sumar :-)

 

Síđast uppfćrt ( mánudagur, 19 september 2011 )
 
Ţrá undir Orra
Skrifađ af Elka   
laugardagur, 13 ágúst 2011

4. vetra hryssan okkar hún Þrá fór undir Orra frá Þúfu í vikunni.  Þetta var skyndiákvörðun þar sem það losnaði pláss undir klárinn og við erum að vonast eftir happdrættisvinning í haust.  Þrá er einungis 4 vetra gömul en hún kastaði slysafolaldi þriggja vetra sem vann folaldasýningu á Hvolsvelli í fyrra, en sú heitir Argentína frá Borg.  Nú er bara að vonast til að Þrá komi heim með gullmola í maganum í haust.

 
Arna frá Reykjavík
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 14 júlí 2011

IS2006258918 -Jörp

F: Atlas frá Hvolsvelli (1. verðlaun)
FF: Kormákur frá Flugumýri (1. verðlaun)
FM: Saga frá Hvolsvelli (1. verðlaun)
M: Assa frá Jórvík 1
MF: Hersir frá Steinum
MM: Freyja frá Sléttu

Fylfull við Forseta frá Vorsabæ (26. júní)
Kastar í lok maí 2012

 
Blćr frá Borg
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 14 júlí 2011

IS2011181205
Fæddur 6. júlí, Jarpstjörnóttur

F: Háfeti frá Lýtingsstöðum
FF: Hágangur frá Narfastöðum (1. verðlaun)
FM: Björg frá Kirkjubæ (1. verðlaun)
M: Blika frá Bakkakoti
MF: Óður frá Brún (1. verðlaun)
MM: Gráblesa frá Bakkakoti

Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 20 júlí 2011 )
Lesa meira...
 
Harpa frá Borg
Skrifađ af Elka   
sunnudagur, 10 júlí 2011
IS2011281202
Fædd 1. júlí, Ljósjörp eða dökk moldótt! 

F: Prati frá Borg
FF: Gaumur frá Auðsholtahjáleigu (1. verðlaun)
FM: Perla frá Útverkum
M: Fiðla frá Hellu
MF: Krummi frá Lækjarbotnum
MM: Ljósa-Blesa frá Álfhólahjáleigu

Lesa meira...
 
Hryssum haldiđ vinstri hćgri...!!
Skrifađ af Elka   
miđvikudagur, 06 júlí 2011

Eftir Landsmótið var ekki annað í stöðunni en að fara að keyra hryssur undir stóðhesta en við höfum verið mjög lítið stressuð við þá iðju það sem af er sumri.  Eldborg frá Búð kom heim með staðfest fyl með heimsmethafanum Spuna frá Vesturkoti, Hrefna frá Kálfholti fór til Spuna í hennar stað, þær Dögun og Stytta eru hjá Framherja frá Flagbjarnarholti, Arna er hjá Forseta frá Vorsabæ, Hrefna frá Kringlu hjá Penna frá Eystra-Fróðholti, Sunna frá Þorlákshöfn hjá Óm frá Kvistum, Sókn frá Búð og Litla-Fluga frá Hafnarfirði eru hjá Ugga frá Bergi, Spes er hjá Prata, Gára er hjá Bresti.... þá eru nú bara nokkrar eftir ótaldar :-)

 
Prati myndađur
Skrifađ af Elka   
ţriđjudagur, 21 júní 2011

Við ætluðum alltaf að mynda Prata í bak og fyrir áður en við slepptum honum.  Eftir byggingadóminn var hann hins vegar kominn útá gras til að sinna fyrstu hryssunum og áður en við vissum af voru vikurnar orðnar þrjár og engin myndataka í augnsýn!  Við slóum þó til þegar skeifurnar voru teknar af þrátt fyrir að hann væri kannski ekki í sínu besta formi.  Prati fær að styrkjast meira næsta vetur áður en hann verður sýndur, en við töldum ekki tímabært að sýna hann í vor.  Það stefndi þó allt í að hann færi í dóm en við ákváðum að láta hann njóta vafans þar sem ekki var enn búið að þreifa mikið á skeiðinu þrátt fyrir að það virkaði galopið.  En það sem einkennir Prata öðru fremur er feiknamikið rými og skreflengd, hann er viljugur en að sama skapi afskaplega rólegur og yfirvegaður, lætur ekkert hafa áhrif á sig hvort sem það er í hólfinu eða í reið.  Folöldin undan honum eru bollétt og fallegt, og okkur sýnist hann ekki vera með rautt gen í sér þar sem ekki hefur fæðst neitt rautt afkvæmi undan honum, þó að það hafi farið rauðar hryssur til hans.  Við erum afskaplega ánægt með það :-)   Hægt er að koma með hryssur undir Prata í sumar, verðið er það sama og í fyrra, 35 þús + vsk með hagagjaldi og einni sónarskoðun.

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 8 af 424
Who´s online
Ţađ eru 2 gestir tengdir
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |

Fatal error: Call to undefined function: curl_init() in /vefir/fyrirtaeki/h/www.hestaborg.com/www/templates/247clean/index.php(145) : eval()'d code on line 1