|

Hestaborg ehf. var stofnað þann 1. september 2007 og er ætlað að halda utan um allan rekstur sem viðkemur Borg og viðskiptum okkar með hesta og hestatengdar vörur og þjónustu.
Fyrirtækið býður uppá flest það sem viðkemur hestum; Kaup og sala hrossa, umboðssala, tamning og þjálfun, reiðkennsla, hestaferðir, og síðar mun vera boðið uppá gistingu samhliða hestaferðum og reiðkennslu. Fyrirtækið er að stíga sín fyrst skref og vonandi á reksturinn eftir að styrkjast og aðlagst þörfum hestamanna þegar fram líða stundir.
Verðskrá Hestaborgar:
Tamning og þjálfun á hryssum, stóðhestum og geldingum:
50.000 krónur + v.s.k. Innifalið fóður og hirðing.
Sumarverð: 40.000 kr. + vsk (frá 1. júní)
Umboðssala:
1.000 krónur á dag auk 10% sölulauna (nema um annað sé samið)
Seljist hrossið ekki er rukkað venjulegt tamninga/þjálfunar gjald.
Sjá þjónustu vegna söluvefs www.hest.is
Eigendur Hestaborgar eru þau Jóhann Garðar Jóhannesson og Sigríður Elka Guðmundsdóttir sem keyptu jörðina Borg í Þykkvabæ haustið 2007.
Áður hafði Jóhann starfað við hestamennsku frá barnæsku, m.a. í Þýskalandi í 15 ár.
Elka byrjaði hestamennsku á unglingsárum og hefur starfað að einhverju leiti við greinina alla tíð síðan, m.a. lokið Hólaskóla 1996, auk þess að vera viðskiptafræðingur síðan 2005.
Við eigum einn son, Guðmund Óla sem fæddur er í mars 2007.
Aðstaðan:

Reiðhöllin er 14*42m


Hesthúsið rúmar 25 miðað við að öll hross séu í eins hesta stíum.
Í reiðhöll eru "svítur" þar sem þrír hestar eru saman.
|