|
Skrifað af Elka
|
|
sunnudagur, 24 júní 2007 |
|

Núna er mamma í Póllandi með pabba og því ber mér skilda til að birta myndir af eina barnabarninu hér reglulega svo þau geti fylgst með. Drengurinn síkáti dafnast vel, er alger svelgur og drekkur og drekkur allt sem hann fær. Móðir hans er léleg nytjakú svo hann verður að fá pela reglulega til að svala þorstanum. Hann er orðinn ríflega meðalstrákur að lengd og þyngd þrátt fyrir að hafa fæðst eins og hálfgerður tannstöngull, langur og mjór! Á myndinni virkar rauður blær yfir hárinu en það er soldið villandi því snáðinn okkar er með ljóst hár. Hann er í peysunnu sem langamma hans og afi gáfu honum á fæðingardeildinni en hann fer nú að vaxa uppúr henni fljótlega eins og flestu öðru, væri ekki hægt að stoppa tímann í smá stund svo við getum notið hans lengur áður en hann verður stór... tíminn líður nefnilega svo ferlega hratt!
|