Hestaborg.com


mánudagur, 06 september 2010
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Ræktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síðunni
Innskráning
Stjórnandi
Hafðu samband / Contact
26.mai 222.jpg
Hesthúsopnun PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Elka   
sunnudagur, 16 desember 2007

Á laugardaginn komu fyrstu hrossin inní nýja hesthúsið á Borg. 21. september var byrjað á því að skipta um þak á þessum ágæta húskofa sem ekki var uppá marga fiska. Þetta hús brann fyrir mörgum árum síðan en útveggirnir stóðu þó eftir. Töluverðar endurbætur hafa því verið gerðar á þessum rúmu tveimur og hálfum mánuði frá því fyrsta verk hófst. Í tilefni af þessum fyrsta áfanga í framkvæmdum á Borg var boðið uppá veitingar á laugardaginn þegar fyrsti hesturinn steig í húsið en það var að sjálfsögðu stoltið okkar hann Hrannar frá Þorlákshöfn.. Margir eiga hlut í þessu hesthúsi með vinnuframlagi af ýmsu tagi, minningarnar margar og útrúlegt að standa inní þessu húsi núna miðað við þær rústir sem horft var í í upphafi. Við viljum koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem hönd lögðu á plóginn og þeirra sem komu og fögnuðu með okkur á laugardaginn. Núna verður dustað rykið af hnakknum og ekki ólíklegt að heyra hófadyn á bökkum Hólsár á næstu dögum. Fyrir alla hina sem komu ekki á laugardaginn þá er velkomið að kíkja á hesthúsið og aldrei að vita nema einhverjar "dollur" séu eftir.


Jói, Birna (mamma Elku) og Elka að gera klárt fyrir ferfætlinga og tvífætlinga.


Reiðhöllin er næsta verkefni. Húsið er 14,5 x 56 metrar.


Hinni teymir Hrannar í húsið,


Jú jú, ætli þetta sé ekki nógu gott fyrir hann! Þó sómahjón í Árbakka eiga hlut í Hrannari.


Horft meðfram reiðhöllinni. Komnir staurar fyrir gerði hægra megin.


Hinni, Jói og Elka


Soldið um veitingar

Athugasemdir
Skrifa nýjaleitaRSS
Palli og Ása IP:85.220.18.147 | 2007-12-16 23:02:37
Til hamingju með þetta glæsilega hús. Vonandi verður þú heima næst þegar við kíkjum í heimsókn.
Eyrún Ýr IP:82.221.47.219 | 2007-12-17 15:28:57
Innilega til hamingju.. Glæsilegt!
Gústi IP:85.220.6.85 | 2007-12-17 17:05:53
til hamingju með glæsilegt hús
verð að fara mæta
Vakurstadir - til hamingju IP:157.157.78.53 | 2007-12-17 21:52:24
Innilega til hamingju með glæsilegt hús
Vakurtaðir
Edda Rún og Siggi Matt - Vígalegt IP:85.197.229.116 | 2007-12-17 23:50:46
Til hamingju með nýju og glæsilegu aðstöðu ykkar.
Við komum og kíkjum á ykkur um leið og vind lægir......
Sandra & Raggi - Hamningjuóskir IP:85.220.99.61 | 2007-12-18 13:51:15
Til hamingju með stórglæsilegt hesthús! Stílhreint og bjart. Biðum að heilsa í sveitina.
Steini Ó Kotströnd IP:85.220.86.24 | 2007-12-18 21:13:14
Til hamingju kiki við í kaffi og kökur
Áslaug Fjóla - TIL HAMINGJU! IP:157.157.207.3 | 2007-12-19 00:51:40
Til hamingju með nýja hesthúsið Við ætlum að koma fljótlega í heimsókn
Kveðja Áslaug og Þórir Efra-Seli
Jón G ( Hestaspil.) - Innilega til hamingju IP:194.144.6.73 | 2007-12-19 12:22:55
'Eg veit að Það fer vel um þrist þarna.Ég óska ykkur gleðilegra jóla.
Ransý Ásgarði - Stórglæsilegt! IP:85.220.122.210 | 2007-12-23 13:12:22
Ég óska ykkur innilega til hamingju með stórglæsilega aðstöðu.
Það verður frábært að vinna með hrossin þegar að reiðhöllin verður komin í notkun líka
Þá þarf ekki að láta veðrið stoppa sig eins og það hefur nú verið miður skemmtilegt í haust/vetur.
Doreen - Til Hamingju! IP:85.220.21.199 | 2008-01-05 22:20:57
Til hamingju með glæsilega húsið ykkur. Þetta er nú fyrsta alvöru hesthús sem ég hef sérð síðan að ég kom til landsins. Alveg jafn stilhreint og ég þékk það úr heimalandinu mínu-Þýskaland. Enn og aftur til hamingju.
Heiða - til hamingju IP:85.220.19.6 | 2008-05-04 21:12:09
Til hamingju með þetta glæsilega hesthús gangi ykkur vel með það ,,bæjóó
Skrifa athugasemd
Nafn:
Titill:

Powered by JoomlaCommentCopyright (C) 2006 Frantisek Hliva. All rights reserved.Homepage: http://cavo.co.nr/

Síðast uppfært ( mánudagur, 07 apríl 2008 )
 
< Fyrri   Næsti >
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |