|
Skrifað af Elka
|
|
sunnudagur, 10 janúar 2010 |
|
.jpg)
Aldrei þessu vant eigum við um helming hrossanna sem eru í hesthúsinu í dag, ýmist í heilu lagi eða hálfu! Við höfum komið okkur upp töluverðum fjölda af hrossum og við reynum eftir fremsta megna að koma þeim að í tamningu og þjálfun, en því miður hafa þau mikið til verið útundan að undanförnu... Ein af þeim hryssum sem eru núna í hesthúsinu er Ótta frá Hamrahóli, en hana valdi ég sem folald í Hamrahóli og hún hefur aldeilis stækkað og dafnað síðan þá. Orðin gullfalleg og geðslagið frábært, ljúf sem lamb og gangurinn opinn og efnilegur. Við höfðum nefnilega áhuggjur af henni Óttu sem folald þar sem hún var í meira lagi stygg og erfið, við höfðum hana inni hjá okkur í c.a. tvær vikur þar sem við strukum henni og kjössuðum á hverjum degi, fyrst reyndar með hanska á priki þar sem hún ætlaði óð að verða ef maður fór inní stíuna til hennar. Síðan fór hún í uppeldi til Tóta í Þorlákshöfn og þar fær hún næga hlýju og gott atlæti. En þetta hefur greinilega borgað sig þar sem hún er núna ljúf og stillt, treystir manninum vel og vill þóknast honum eftir fremsta megni.
|