|
Skrifað af Elka
|
|
föstudagur, 05 mars 2010 |
|
.jpg)
Stóðhesturinn okkar, hann Brestur frá Lýtingsstöðum, hefur heldur betur verið að blómstra í vetur. Við vorum óheppin með hann í fyrra vetur vegna meiðsla og í rauninni töldum við hann varla vera tilbúinn í sýningu síðastliðið vor, en þar sem hann var orðinn fimm vetra þó þótti ekki annað hægt en að renna honum í gegn þrátt fyrir að hann hafi ekkert verið taminn á fjórða vetur. Núna er hann að styrkjast mikið og verður betri með hverjum deginum. Við erum allavega ferlega stolt af þessum snáða og teljum hann vera efni í frábæran fimmgangshest.
.jpg)
|