|
Skrifað af Elka
|
|
mánudagur, 24 maí 2010 |
|
Hann Prati kom heim frá Þorlákshöfn fyrir helgi og við erum ferlega ánægð með hvað hann hefur þroskast mikið og vel. Hann er stór og fallegur, léttbyggður og mér persónulega finnst þessi litur alveg frábær, hefur almennt ekki huggnast jörp hross en það sleppur til þegar þau eru svona dökk. Það er nú þannig komið að nánast er orðið fullt undir folann, meira en 20 hryssur orðnast bókaðar og hann er aðeins byrjaður að æfa sig og stendur sig vel. Við höldum líklega um 5 hryssum undir hann, enda væri maður heldur betur sáttur ef maður ætti fullt hús af svona tryppum í hesthúsinu!
|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 24 maí 2010 )
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
laugardagur, 22 maí 2010 |
|
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
miðvikudagur, 19 maí 2010 |
|
.jpg)
Eins og alþjóð veit geysar þessi leiðindar kvefpest í hrossum um allt land. Við erum engin undantekning og höfum nánast ekkert riðið út allan maí mánuð. Við ákváðum að setja geldingana okkar útí hólf til að létta á húsinu og leifa þeim að jafna sig í friði, undir beru lofti. Þeir voru ekkert laslegir þegar þeir komust í frelsið og við væntum þess að fá þá hressa og spræka í sumar eftir góða hvíld. Þarna eru nokkrir "fyrrverandi" graðhestar og það er gaman að sjá þegar maður mætir með hestakerru, þá koma þeir allir hlaupandi og vonast eftir skvísu í hópinn. En svo heppnir eru þeir ekki :-)
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
sunnudagur, 02 maí 2010 |
|

Breki frá Borg var seldur til Þýskalands sem stóðhestsefni sem folald. Breki er undan 1. verðlauna hryssunni Drífu frá Reykjavík og Tjörva frá Sunnuhvoli. Breki kom fram á ungfolasýningu í vetur og stóð sig með mikilli prýði og hlaut um 8 í aðaleinkunn. Eigandi hans Birgit Wagner sendi þessa mynd af Breka sem er á þriðja vetur.
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
laugardagur, 01 maí 2010 |
|
IS1999257341 - Rauðblesótt, glófext
F: Hugi frá Hafsteinsstöðum (Heiðursverðlaun f. afkvæmi)
FF: Hrafn frá Holtsmúla (Heiðursverðlaun f. afkvæmi)
FM: Sýn frá Hafsteinsstöðum (1. verðlaun f. afkvæmi)
M: Litla-Toppa frá Hafsteinsstöðum (Einkunn: 7,87)
MF: Rauður frá Kolkuósi (1. verðlaun)
MM: Toppa frá Hafsteinsstöðum (1. verðlaun)
Fylfull við Auð frá Lundum 2010 (5. júní)
Ætti að kasta í byrjun maí 2011
|
|
Síðast uppfært ( sunnudagur, 27 júní 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
fimmtudagur, 22 apríl 2010 |
|
.jpg)
Það er nú ekki langur afkvæmalistinn hans Brests okkar frá Lýtingsstöðum. Einungis eru tveir hestar skráðir í feng, en fyrir allra lukku sakir er von á slatta af afkvæmum næsta vor. En ég á mynd af öllum afkvæmum hans tveimur.. og eru þeir báðir gullfallegir, skjóttir og faxprúðir með flottar hreyfingar, spakir og elskulegir. Við verðum með nokkra stóðhesta á húsnotkun hérna á Borg, er þar helst að telja Brest og Þrist frá Þorlákshöfn. Ef þú hefur í hyggju að fá skjóttan fagran gæðing í safnið.. er um að gera að hafa samband :-)
.jpg)
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
fimmtudagur, 22 apríl 2010 |
|
.jpg)
Það voru teknar myndir af Þristi á dögunum þar sem hann sprellar með Flóka og Krúsa af gömlum vana, hægt að sjá þær á heimasíðu Þrists www.123.is/hestaspil
Annars er það að frétta að allir ungfolar eru komnir á hús og búið að undirbúa inntöku allra hrossa um helgina ef við fáum ösku yfir okkur. Við getum ekki kvartað yfir aðstöðu, enda hægðarleikur að færa hrossin inní reiðhöll til að forðast alla hættu.
Við erum ákaflega stolt af ungfolunum okkar þremur, Álfabrenni, Háfeta og Prata en þeir voru metnir fyrir byggingu á dögunum og hlutu allir þrír góðar einkunnir, Álfabrennir 8,11, Háfeti 8,38 og Prati 8,26.
Útreiðar ganga mjög vel, reyndar er Jói öklabrotinn en það styttist í að hann komist í hnakkinn aftur. Þangað til er algjört "girlpower" í hesthúsinu en töluvert hefur þó fækkað uppá síðkastið í hesthúsinu þar sem ungfolarnir og folöldin þurfa sitt pláss, en tilbúin söluhross og hross sem stefnt er með í dóm eru inni, ásamt nokkur þjálfunarhross, c.a. 25 í heildina, eru í þjálfun og við erum mjög sátt við þróunina í þeim langflestum.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 17 - 24 af 396 |