Hestaborg.com


Heim
mánudagur, 06 september 2010
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Ræktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síðunni
Innskráning
Stjórnandi
Hafðu samband / Contact
perlaogsnot.jpg
Álfabrennir frá Lýtingsstöðum
Skrifað af Elka   
miðvikudagur, 31 mars 2010

IS2007181779
Rauður

F: Álfur frá Selfossi (1. verðlaun)
FF: Orri frá Þúfu (Heiðursverðlaun f. afkvæmi)
FM: Álfadís frá Selfossi (1. verðlaun)
M: Brenna frá Varmadal (1. verðlaun)
MF: Gyrðir frá Svínhaga
MM: Blesa frá Varmadal

Síðast uppfært ( laugardagur, 15 maí 2010 )
Lesa meira...
 
Háfeti frá Lýtingsstöðum
Skrifað af Elka   
mánudagur, 29 mars 2010
IS2007181781
Rauðblesóttur, glófextur með leist.

F: Hágangur frá Narfastöðum (Aðaleinkunn: 8,31)
FF: Glampi frá Vatnsleysu (1. verðlaun)
FM: Hera frá Herríðarhóli (1. verðlaun)
M: Björg frá Kirkjubæ (1. verðlaun)
MF: Trostan frá Kjartansstöðum (1. verðlaun)
MM: Brella frá Kirkjubæ

Síðast uppfært ( laugardagur, 15 maí 2010 )
Lesa meira...
 
Prati frá Borg á ungfolasýningu
Skrifað af Elka   
sunnudagur, 28 mars 2010

Við fórum með þrjá fola á Ungfolasýningu í Ölfushöll þann 27. mars. Einn er úr okkar ræktun, Prati, undan Gaum frá Auðsholtshjáleigu og Perlu frá Útverkum. Síðan fórum við með tvær sameignir úr ræktun þeirra Helga Bjarna og Gunnu á Lýtingsstöðum, betur þekkt fyrir að reka veitingarhúsið Kanslarann á Hellu. Allir folarnir eru álitlegir og stóðu sig með prýði. Prati og Háfeti fengu mjög góða umsögn fyrir byggingu og Prati heillaði marga með mikilli yfirvegun og glæsilegri framgöngu. Álfabrennir er einnig sérlega léttur og skemmtilegur foli en hann sýndi kannski ekki sitt allra besta þetta kvöld. En það verður ekki leiðinlegt að temja þessa kappa næsta haust :-)

Síðast uppfært ( sunnudagur, 28 mars 2010 )
 
Jón Bara Emil í tilvistarkreppu?
Skrifað af Elka   
þriðjudagur, 16 mars 2010

Ég tók þetta myndband af honum Emil (heitir fullu nafni Jón bara Emil!), en hann fékk bita af fiskbúðing og varð líka svona svaka hrifinn. Hljóðið sem hann gefur frá sér líkist helst urri í hundi. hækkið vel í hátalaranum til að heyra þessi undur!

 

Síðast uppfært ( þriðjudagur, 16 mars 2010 )
 
Fyrsta Hestamótið!
Skrifað af Elka   
sunnudagur, 14 mars 2010

Guðlaug Birta og Guðmundur Óli voru bæði að keppa í fyrsta skiptið á Vetrarmóti Geysis um daginn.  Þau voru ferlega flott og það er á dagskránni að græja Guðmund svolítið upp.. afmælið er á næsta leiti og aldrei að vita hvað kemur uppúr pökkunum :-)  Guðmundur Óli er að sjálfsögðu á honum Blæng sínum.

 
Brestur í góðum gír
Skrifað af Elka   
föstudagur, 05 mars 2010

Stóðhesturinn okkar, hann Brestur frá Lýtingsstöðum, hefur heldur betur verið að blómstra í vetur.  Við vorum óheppin með hann í fyrra vetur vegna meiðsla og í rauninni töldum við hann varla vera tilbúinn í sýningu síðastliðið vor, en þar sem hann var orðinn fimm vetra þó þótti ekki annað hægt en að renna honum í gegn þrátt fyrir að hann hafi ekkert verið taminn á fjórða vetur.  Núna er hann að styrkjast mikið og verður betri með hverjum deginum.  Við erum allavega ferlega stolt af þessum snáða og teljum hann vera efni í frábæran fimmgangshest.

 
Þota frá Eystra-Fróðholti
Skrifað af Elka   
mánudagur, 15 febrúar 2010

IS2009286201 - Móálótt

F: Ófeigur frá Bakkakoti
FF: Ófeigur 882 frá Flugumýri
FM: Blika frá Bakkakoti
MF: Reykur frá Hoftúni
MFF: Ófeigur 882 frá Flugumýri

 

Síðast uppfært ( miðvikudagur, 02 júní 2010 )
Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 25 - 32 af 396
Who´s online
Það eru 15 gestir tengdir
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |