Hestaborg.com


Heim
mánudagur, 06 september 2010
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Ræktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síðunni
Innskráning
Stjórnandi
Hafðu samband / Contact
Utverk4okt 006.jpg
Blika frá Bakkakoti
Skrifað af Elka   
laugardagur, 06 febrúar 2010

Þjálfun gengur vel á Borginni.  Við eigum töluvert af efnilegum hryssum í húsinu, ýmist allar eða til helminga.  Ein af sameignum er hún Blika frá Bakkakoti, Bliku eigum við með Báru Rúnarsdóttur á Kornvöllum en Blika er undan Víglundi frá Vestra-Fíflholti.  Blika er stór og mikil og hefur þurft sinn tíma.  En tíminn hefur unnið henni í haginn og Blika hefur margt til brunns að bera til að verða alvöru gæðingur.  Allavega þarf ekki að kvarta yfir rými eða fótaburði!

 
Aðalhesturinn
Skrifað af Elka   
miðvikudagur, 20 janúar 2010

Það var svo skrýtið að Guðmundur Óli tók uppá því haust að ákveða uppá eigin spýtur að þetta væri hesturinn hans.  Það var nú samt meðvituð ákvörðun að leifa honum að kjassast utaní Blæng þar sem hann er svo stilltur og prúður en fljótlega var þetta orðinn fastur liður í að fara í hesthúsið.. Hvar er hesturinn minn???  Síðan dröslaðist hann með hey fram og til baka og skeyttu engu um það hversu afbrýðisamir aðrir hestar urðu.. "ég ætla að gefa hestinum mínum hey"..  Það gekk meira að segja svo langt að Blængur var útí á túni í veðurblíðunni en það breytti engu.. út með heytuggu dröslaðist litli maðurinn til að gefa hestinum sínum hey.  Síðan horfir hann á hann borða heyið og kyssir hann bless þegar hann fer.  Þetta.. og það að Blængur er hjá okkur af sérstakri ástæðu, var tekin sú ákvörðun að Blængur yrði aldrei seldur og þetta væri hesturinn hans.  Blængur skipar líka mjög veigamikið hlutverk í hesthúsinu, hann er tamningahesturinn.. utaná hann eru bundin baldin tryppi og oft þarf hann að dröslast tvisvar á dag til að leiða lítið tamin tryppi útí veröldina.  Og stóra stundin rann loksins upp að hann fékk að fara á hestbak.. hamingjan var ótrúleg.. skellihló hring eftir hring og var hamingjusamasti drengur í heimi.  Blængur er öðlingur og er.... hvað sem aðrir segja... LANGBESTI hesturinn í húsinu.

 
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn
Skrifað af Elka   
miðvikudagur, 20 janúar 2010

Emil er nýjasti ábúandinn á Borg.  Hann er c.a. 6 vikna kettlingur, loðinn og ferlega mikið krútt.  Við vorum búin að ákveða að vera með eina kisu inní íbúðarhúsi en úti í hesthúsi er Borgarnótt og tvær dætur hennar.  Guðmundur Óli er virkilega ánægður með Emil og er kominn með nýjan leikfélaga, allavega meðan Emil er lítill og alltaf tilbúinn að sprella.. spurning hvað verður síðar!

 
Ótta frá Hamrahóli
Skrifað af Elka   
sunnudagur, 10 janúar 2010

Aldrei þessu vant eigum við um helming hrossanna sem eru í hesthúsinu í dag, ýmist í heilu lagi eða hálfu!  Við höfum komið okkur upp töluverðum fjölda af hrossum og við reynum eftir fremsta megna að koma þeim að í tamningu og þjálfun, en því miður hafa þau mikið til verið útundan að undanförnu...  Ein af þeim hryssum sem eru núna í hesthúsinu er Ótta frá Hamrahóli, en hana valdi ég sem folald í Hamrahóli og hún hefur aldeilis stækkað og dafnað síðan þá.  Orðin gullfalleg og geðslagið frábært, ljúf sem lamb og gangurinn opinn og efnilegur.  Við höfðum nefnilega áhuggjur af henni Óttu sem folald þar sem hún var í meira lagi stygg og erfið, við höfðum hana inni hjá okkur í c.a. tvær vikur þar sem við strukum henni og kjössuðum á hverjum degi, fyrst reyndar með hanska á priki þar sem hún ætlaði óð að verða ef maður fór inní stíuna til hennar.  Síðan fór hún í uppeldi til Tóta í Þorlákshöfn og þar fær hún næga hlýju og gott atlæti.  En þetta hefur greinilega borgað sig þar sem hún er núna ljúf og stillt, treystir manninum vel og vill þóknast honum eftir fremsta megni.

 
Engin heppni...
Skrifað af Elka   
fimmtudagur, 07 janúar 2010

Fyrir rúmum tveimur árum sigraði Leikdís frá Borg folaldasýningu Landeyinga.  Miðað við það hvernig Leikdís lítur út í dag var það engin grís!  Við erum alveg ferlega stolt að þessu tryppi, það dylst engum hæfileikar og fegurð enda sýnir hún alveg einstaka mýkt í hreyfingum og fótaburð, bregður fyrir sig tölti og brokki eftir því sem við á.  Miklu rými og glæsibrag.  Þar að auki er hún stór og myndarleg, glæsileg fram og léttbyggð.  Við tókum hana aðeins inn um jólin til að gera hana bandvana og kynnast aðeins betur.  Stefnan er að halda henni næsta sumar og gera reiðfæra um haustið...

 
Matur
Skrifað af Elka   
sunnudagur, 27 desember 2009

Stóðið röltir á áttina á traktornum þegar hann kemur færandi hendi með matinn þeirra.  Þau hafa það afskaplega gott á bökkunum, nóg sina til að fara í á milli gjafa þótt yfirleitt skorti nú ekki hey.  Gott skjól og mjög gott að geta horft á þau útum svefniherbergisgluggann og þau sjást greinilega úr hesthúsinu.

 
Gleðileg Jól!
Skrifað af Elka   
miðvikudagur, 23 desember 2009
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 33 - 40 af 396
Who´s online
Það eru 17 gestir tengdir
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |