Þristur var sýndur áhugasömum hestamönnum á Ingólfshvoli á laugardagskvöld. Jóhann G. Jóhannesson sýndi hestinn í reið og þeir þættir sem glöggt komu fram í fari hestsins voru: Glæsileg bygging, einstakt geðslag, hreint og rúmt tölt, mikið fas, mikill vilji og frábært skeið. Niðurstaðan voru 40 hlutir á staðnum og því eru einungis um 20 hlutir enn í boði. Þeir sem vilja tryggja sér hlut er bent á að hafa samband við Sæmund á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða á heimasíðuna www.123.is/mikligardur
Það eru margir hestamenn sem eru með hesta í húsinu hjá sér sem þeir hyggjast selja en hafa hugsanlega ekki tæknilega þekkingu til að koma hrossunum á framfæri með áhrifaríkum hætti. Ég hef ákveðið að bjóða fólki sem er í þessum sporum að ég komi á staðinn og taki myndir af hestunum í reið og/eða kyrrstöðu. Í kjölfarið er unnið úr myndunum og tæmandi upplýsingar um hestinn settar hér á sölusíðuna. Einnig er hægt að taka stutta vídeóbúta til að setja einnig á netið fyrir þá sem þess óska. Heimsóknin, myndataka, úrvinnsla mynda og upplýsinga og birting auglýsingarinnar á vefnum í allt að tvo mánuði (í flestum tilfellum er hesturinn seldur innan þess tíma) mun kosta 10.000 kr. Ef um fleiri hesta er að ræða á sama stað myndi verðið á hvern hest vera lægra. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa þjónustu í vetur geta haft samband við mig á póstfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 863-8813.
Stofnfundur um hlutafélag um Þrist frá Þorlákshöfn verður haldinn um næstu helgi. Sýningin verður í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, laugardaginn 25. nóv kl. 19.00. Haldinn verður formlegur stofnfundur strax á eftir stuttri sýningu á klárnum. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar á www.123.is/mikligardur
Nánari upplýsingar um Þrist eru undir Fréttir - Hestar - Þristur í hlutafélag.....
Mér skilst að það séu komnir á þriðja tug hluthafa svo úr gæti orðið hinn skemmtilegasti félagsskapur. Hluturinn kostar einungis 60.000 kr. Þristur á helling inni og er stefnt með klárinn aftur í dóm næsta vor.
Þetta er ótrúlega fyndið land.... Á Suðurlandi er auð jörð og helgin var björt og falleg með hita yfir frostmarki.. reyndar soldið rok á sunnudaginn en hver er ekki vanur því !! Þegar við Nicki keyrðum í vinnuna í morgun er Hellisheiðin meira að segja auð, fyrsti skaflinn er við hringtorgið í Norðlingarholt... hmm.. mætti halda að snjórinn hafi verið sérpantaður á fyrirframákveðinn áfangastað.