|
Skrifað af Elka
|
|
þriðjudagur, 15 desember 2009 |
|
.jpg)
Það var jólaball í Þykkvabænum á sunnudaginn. Jóhannes Óli og Hulda nýkomin frá Flórída. Guðmundur Óli var svakalega glaður að sjá þau aftur, búin að sakna þeirra mikið. Ekki fannst honum heldur leiðinlegt að fá nýtt dót, ný föt og fullt af nammi. Síðan var drifið sig í nýju rauðu skyrtuna og af stað á ball. Fyrst var föndrað, síðan drukkið kaffi og loksins dansað í kringum jólatréð. Það greip síðan um sig mikil skelfing í litla stóra kallinum þegar skeggjaðir rauðklæddir náungar birtust.. eftir nokkrar sekúndur í frosinni stellingu var hlaupið eins hratt og fæturnir toguðu í fangið á mömmu og ekki sleppt fyrr en þeir voru örugglega komnir út húsi! Það eru myndir frá viðburðinum í myndaalbúmi en hann tók sjálfur flestar myndirnar, enda gríðarlega efnilegur og áhugasamur ljósmyndari á ferð!
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
laugardagur, 05 desember 2009 |
|
.jpg)
Það var smalað úr Safamýrinni í dag. Við vorum búin að taka folaldshryssurnar heim á gjöf og núna var restinni smalað, "úr efri mýrinni" eins og það heitir. Allt var rekið til Lindu í Smáratúni og þar var hrossunum skipt milli bæja. Það er ákveðinn léttir að vera komin með öll hross heim og undir eftirlit og svo ótrúlega spennandi að sjá hvað þau hafa þroskast og stækkað. Safamýrin er nefnilega bara eins og afrétt og lítill umgangur við menn. Mikið rými og mikið gras enda tryppin í flottu standi eftir dvölina.
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
þriðjudagur, 24 nóvember 2009 |
|
.jpg)
Vantar þig ókeypis jólagjöf sem ætti ekki að vera í neinum vandræðum með að gleðja hvert mannshjarta :-) Þeir eru náttúrulega alveg ferlega sætir þessir kettlingar sem fæddust um mánaðarmótin. Nokkrir gráir, í einhverskonar síamslit! Ferlega fallegur litur og mér sýnist þeir allir verða loðnir eins og mamman. Verða tilbúnir um jólin vænti ég. Vantar ekki að losna við mýsnar úr hesthúsinu.
.jpg)
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
miðvikudagur, 19 maí 2010 |
|
IS2007286236 - Móvindótt
F: Vonandi frá Bakkakoti
FF: Adam frá Asmundarstöðum (1. verðlaun)
FM: Von frá Bakkakoti (1. verðlaun)
M: Von frá Byrgisskarði
MF: Greipur frá Miðsitju (1. verðlaun)
MM: Dísa frá Byrgisskarði
Kastaði japrvindóttri hryssu undan Óðni frá Eystra-Fróðholti 30. júní 2010.
Þrá verður tamin veturinn 2011. |
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 15 júlí 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
sunnudagur, 22 nóvember 2009 |
|
.jpg)
Við skunduðum á Folaldafjör í Rangárhöllinni á laugardag. Mættum þar galvösk með þrjú folöld, þau Eyjarós, Sjálf og Laxdal. Þau unnu sér rétt til þátttöku eftir frammistöðu á folaldasýningunni sem haldin var hérna hjá okkur í Borg. Laxdal fór reyndar krókaleið, hann varð fjórði í hestaflokknum hjá okkur en komst inn vegna þess að Sökkull frá Dalbæ gat ekki mætt. En hann skaut samt hinum tveimur ref fyrir rófu og komst í úrslitin. Laxdal er nú kannski ekki sá allra fallegasti í kyrrstöðu en hann verður klárlega algjör gæðingur, mikil mýkt, spyrna og allur gangur mjúkur og rúmur. Sigurvegari folaldasýningarinnar hjá okkur, hann Bragi frá Litlu-Tungu, sigraði síðan sýninguna alla með glæsibrag, hann er alveg frábær þessi foli, háfættur, fagur, mjúkur og hágengur. Þau hross sem öðluðust þáttökurétt héðan stóð sig vel, enda notast við svipað dómkerfi. Bragi sigraði og Laxdal einnig í úrslitum. Og í hryssuflokknum voru Tign og Fold báðar í úrslitum. Þannig að fjögur af sex folöldum komust í úrslit sem er nú bara ansi gott.
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
laugardagur, 14 nóvember 2009 |
|
IS2002257898 - Brún
F: Adam frá Ásmundarstöðum
FF: Stígur frá Kjartansstöðum
FM: Siggu-Brúnka frá Ásmundarstöðum
M: Stjörnunótt frá Tunguhálsi
MF: Þróttur frá Tunguhálsi
MM: Nótt frá Miklabæ
Haldið undir Mídas frá Kaldbak 2010
Kastar fyrri hluta maí 2010 (fyl 7. júní 2010) |
|
Síðast uppfært ( fimmtudagur, 15 júlí 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
miðvikudagur, 28 október 2009 |
|
.jpg)
Þær láta fara vel um sig folaldshryssurnar á "Sandinum" en þar fá þær að vera á haustin þangað til kemur að gjöf. Safamýrin er gullkista Þykkbæinga, mörg hundruð hektarar af sameiginlegu grasi og tryppi og önnur hross sem ekki eru notuð til reiðar fá að dvelja þar frá vori og fram á haust/vetur. Í tilefni af folaldasýningunni sem haldin var um síðustu helgi voru reknar heim þær folaldshryssur sem fengu að taka þátt. Mín var náttúrulega mætt með myndavélina til að festa á filmu "haustið" sem komið er í folöld og önnur hross. Á myndinni eru þau mæðgin Spes frá Krossi og Sproti frá Borg, undan Auð frá Lundum. Sproti er algjör töffari, sperrtur og reistur með flottan fótaburð. með fréttinni fylgja fleiri myndir.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 41 - 48 af 396 |