Hestaborg.com


Heim
mánudagur, 06 september 2010
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Rćktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síđunni
Innskráning
Stjórnandi
Hafđu samband / Contact
23_mai 137.jpg
Fyrsta afkvćmi Spes frá Krossi komiđ í dóm
Skrifađ af Elka   
laugardagur, 03 október 2009

Ein af okkar uppáhaldsræktunarhryssum var að eignast sitt fyrsta "dæmda" afkvæmi en Nagladóttirin Snekkja frá Svalbarða kom til dóms á Síðsumarssýningu á Hellu. Snekkja er vígaleg klárhryssa sem hlaut 7,92 í aðaleinkunn, en það sem vekur athygli er frábær byggingaeinkunn eða 8,48. Spes frá Krossi, móðir Snekkju, eignuðumst við veturinn 2006 en þá var hún fylfull við Ísari frá Efra-Seli. Þannig að fyrsta afkvæmið okkar er að koma til tamningar en við áætlum að taka Ísöld inn þegar nær dregur áramótum. Ég má þó hundur heita ef sú hryssa hlýtur sambærilega byggingareinkunn og Snekkja þó að það sé margsannað að maður hefur takmarkað vit á þessu stundum! Spes hefur alið okkur fjögur afkvæmi en hún hefur alltaf fyljast til þessa, 2006 kom Ísöld, 2007 kom Völsungur sem er seldur en hann er undan Natan frá Ketilsstöðum. 2008 kom Sponni en hann er jarpblesóttur, hringeygður undan Hrannari frá Þorlákshöfn og nú síðast, og sennilega sá allra flottasti, er Sproti frá Borg, móálóttur, stjörnóttur, hringeygður undan Auð frá Lundum. Spes var haldið undir Asa frá Lundum í ár en fyljaðist ekki. Enda kominn tími á eitt ár í pásu hjá þessari frjósömu hryssu. Hægt er að lesa um Spes hérna.

Myndin er fengin af heimasíðu eigenda Snekkju  http://hest.123.is/

Síđast uppfćrt ( laugardagur, 03 október 2009 )
 
Haustiđ komiđ
Skrifađ af Elka   
föstudagur, 02 október 2009

Já, haustið er sko aldeilis komið.  Orðið skítkalt á morgnanna, þarf að fara að finna sköfurnar til að hafa í bílunum því visakortið endist ekki lengi í því hlutverki.  Nú er folöldin öll komin heim eftir að mæðurnar hafa verið margar hverjar af bæ við þá iðju að búa til ný systkini.  Lanflest reiðhross komin í Safamýrina í haustbeit og folaldshryssurnar komnar á Sandinn þangað til þær komast á gjöf.  Á myndinni er eitt flottasta folald sumarsins, Laxdal frá Borg undan Óm frá Kvistum.  Þvílíkir ganghæfileikar og hreyfingar í þessum fola, ferlega bangsalegur og asnalegur í laginu í bili en það er víst betra en að verða kalt.  Með fréttinni fylgja nokkrar haustmyndir! 

Lesa meira...
 
Landnámshćnurnar á Borg
Skrifađ af Elka   
miđvikudagur, 23 september 2009

Já það er ekki öll vitleysan eins!  Í garðinum á Borg vappa um skrautlegar hænur.  Reyndar eru þær ennþá í minnihluta þar sem ekki hefur verið sorterað.  Hanarnir eru fyrirferðameiri enda eru litlu sætu ungarnir orðnir ansi stórir!  RÆS kl. sex á morgnana þegar þeir allir gala í kór.  Reyndar eru þeir skárri núna heldur en fyrst þegar þeir voru allir á mútum og svo rammfalskir að það var ekki annað hægt en að brosa.  En það þýðir víst ekki að hafa þær í garðinum mikið lengur þar sem þeir þurfa húsaskjól þegar veturinn kemur.  Einnig eru þær búnir að hertaka tröppurnar þegar rignir... spariinnganginn það er að segja.  En þær eru fallegar og fyndnar, ótrúlegt hvað þeim lyndir við hundana á bænum en það verður nú að segja um þá að þeir eru einstaklega kurteisir.  En það getur verið fyndið að sjá hvor eru fljótari að matarleyfum hundarnir eða hænurnar...  kallast víst "goggunarröð".

 

 
Nćsti kafli!
Skrifađ af Elka   
laugardagur, 12 september 2009

Það má segja að nú séu að byrja "næsti kafli". Eftir síðustu hestaferð sumarsins sem lauk í ágúst voru útreiðar í hálfgerðu lágmarki. Það er líka nauðsynlegt að hlaða batteríin og undirbúa næstu skref. Pásan var þó ekki meiri en það að við tókum þátt í Suðurlandsmótinu, húsfrúin í fyrsta skipti útá völl í "alvöru" keppni. Búin að taka þátt í vetrarmótum og firmakeppni en aldrei farið í þennan slag. Það var virkilega skemmtilegt og setur mann solítið í gírinn, 2. sæti í fimmgangi á Pytlu frá Miðsitju og 3. sæti í tölti á Sæl frá Hömluholti, 2. flokki.  Við stóðum einnig fyrir nýstárlegri sölusýningu sem við erum ferlega ánægð með.  Ætlum að reyna að halda tvær slíkar sýningar í viðbót, ein uppúr miðjum október en þá hefur verið hvað líflegast í hestasölu undanfarin ár.  Og eina til viðbótar væntanlega í janúar.  Þessar sýningar eru einna helst til að koma söluhrossum á framfæri við erlenda kaupendur.

Á myndinni er hún Marita sem er norkur dugnaðarforkur sem ætlar að vera með okkur í vetur við tamningu og þjálfun.  Fyrstu dagarnir eftir komu fóru í að taka hesthúsið algerlega í gegn, allur skítur mokaður og milligerðir og veggir þrifnir hátt og lágt.  Nú er því ekkert að vandbúnaði að taka hross á hús.  Söluhrossin verða í algleymingi þessar vikurnar og bíður okkur töluverður verkefnalisti í þjálfun og myndatöku.  Einnig er á döfinni að taka reiðhöllina í gegn en eins og þeir hafa tekið eftir sem hafa heimsótt okkur í sumar er hún ansi yfirfull af öllu öðru en því sem snýr að hestamennsku! 

Síđast uppfćrt ( laugardagur, 12 september 2009 )
 
Túkall frá Borg
Skrifađ af Elka   
föstudagur, 21 ágúst 2009

Móálóttur skjóttur
Fæddur 3. ágúst 2009

F: Stæll frá Neðra-Seli
FF: Stáli frá Kjarri (1. verðlaun)
FM: Spæta frá Hólum
M: Króna frá Smáratúni
MF: Herkúles frá Stóra-Langadal

Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 03 ágúst 2010 )
Lesa meira...
 
Kettlingar fást gefins
Skrifađ af Elka   
ţriđjudagur, 18 ágúst 2009

Erum með alveg ferlega sæta kettlinga gefins á góð heimili.  Þeir eru loðnir, ferlega kelnir og miklar rúsínur.  Þeir eru um tveggja mánaða gamlir og því tilbúnir á ný heimili.  Eru uppaldir í hesthúsinu og henta þess vegna eins í hesthús sem inná heimili. 

 
Hestaferđin gekk vel
Skrifađ af Elka   
mánudagur, 17 ágúst 2009

Já hún gekk vel hestaferðin sem farin var í ágúst.  Með í för voru 14 þýskar konur á öllum aldri.  Riðin var mjög hefðbundin leið sem liggur við að hestarnir séu farnir að rata :-)  Borg - Árbakki - Skarð - Rjúpnavellir (gist í tvær nætur) - Gunnarsholt - Torfastaðir í Fljótshlíð.  Um 70 hross með í för og allt gekk eins og sögu.  Ég tók nokkrar myndir á stuttum kafla, úr Vatnsdalnum og niður í Fljótshlíðina, og það er hægt að skoða þær í myndaalbúmi.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 49 - 56 af 396
Who´s online
Ţađ eru 10 gestir tengdir
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |