Hestaborg.com


Heim
mánudagur, 06 september 2010
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Rćktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síđunni
Innskráning
Stjórnandi
Hafđu samband / Contact
Svarta_juni07.jpg
Stytta frá Hafsteinsstöđum
Skrifađ af Elka   
laugardagur, 01 ágúst 2009

Nú eru ákveðin kaflaskipti í þjálfun á Borg en þrjár frábærar stúlkur hafa verið hjá okkur í sumar og skilað frábærri vinnu í tamningu og þjálfun.  Hún Hanna frá Svíþjóð fór í vikunni eftir tæplega árs dvöl hjá okkur.  Sólrún og Ólöf byrja báðar í skólanum uppúr miðjum ágúst og verða í fríi með fjölskyldum sínum þangað til þótt við eigum eflaust eftir að njóta aðstoðar frá Sólrúnu áfram, enda býr hún stutt frá okkur.  Í næstu viku koma 14 Þjóðverjar í fimm daga hestaferð og stendur undirbúningur á fullu fyrir það, enda þarf góðan hestakost og skipulagningu svo ferðin verði sem allra skemmtilegust.  Svo byrja þær að týnast inn nýju stúlkurnar, erum með hana Josephine frá Þýskalandi núna í mánuð og síðan kemur hún Vanessa frá Austurríki í byrjun ágúst og Marita frá Noregi í byrjun september.  Allt eru þetta þrælvanar og reynslumiklar stelpur og þess vegna byrjar þjálfun og tamningar að fullum krafti aftur í september.  En nú verður lögð áhersla á söluhross í bili enda hefur rokselst af hrossum síðustu vikur og ef áfram fer sem horfir fer að verða hestaskortur hjá okkur fljótlega. 

Reyndar kom hópur af nýjum hrossum í vikunni en gott samstarf hefur verið milli Hestaborgar og Guðmundar Pálssonar.  Á myndinni er ein hryssa sem er í sameiginlegri eigu okkar en það er hún Stytta frá Hafsteinsstöðum undan Huga og Litlu-Toppu.  Stytta er með fallegt folald undan Glotta frá Sveinatungu sér við hlið en ætlunin er að stefna á sýningu með Styttu næsta vor.

 
Sinfónía stendur sig vel!
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 30 júlí 2009

Já hún er heldur betur gæðingur hún Sinfónía frá Hábæ sem við seldum í vetur en fær enn um sinn að dvelja á Íslandi. Jói og Sinfó eins og við köllum hana oftast skeltu sér í fyrsta skiptið í gæðingakeppni um síðustu helgi hjá Sleipni og nældu sér í sjötta sætið í harðri keppni. Forkeppnin gekk mjög vel fyrir utan skeiðið sem var fjórtaktað og uppskáru þau 8,32 í einkunn. Í B-úrslitum var skeiðið líkara því sem það á að vera og 8,48 var uppskeran og sigur í B-úrslitum eftir að hafa verið neðarlega inní úrslitin. Í A-úrslitum síðar um daginn klifraði sú stutta enn lengra og náði sjötta sætinu og 8,51 í einkunn. Sinfónía hefur einu sinni farið í fimmgang og uppskar þar þriðja sætið á sterku opnu íþróttamóti hjá Geysi með 7,19 í einkunn. Í vetur fékk ég að leika mér í tölti með hana og urðum við í 3 sæti í bæði skiptin. Næsta verkefni er kynbótadómur í ágúst og það er bara að vona að hún haldi áfram að standa sig eins og hetja.  Eigandi af Sinfóníu er Carla Vestin í Svíþjóð og henni má alveg fara að hlakka til að fá að njóta hennar í haust.

 

Síđast uppfćrt ( fimmtudagur, 30 júlí 2009 )
 
Náttfari frá Ţorlákshöfn
Skrifađ af Elka   
föstudagur, 24 júlí 2009

Fann þessa flottu mynd inná sænski hreimasíðu en hesturinn á myndinni, sem er víst sérfræðingur í spænska sporinu, heitir Náttfari frá Þorlákshöfn.  Náttfari er okkur nokkuð skyldur ef svo má segja, undan Tinnu frá Svignaskarði og Kjarki frá Egilsstöðum.  Sunna okkar frá Þorlákshöfn er einnig undan Tinnu sem er 1. verðlauna Höfða-Gustsdóttir og Hrannar frá Þorlákshöfn er undan systur Náttfara og Sunnu, sem er einnig 1. verðlauna hryssa sem heitir Koltinna.  Svipurinn leinir sér heldur ekki en það er hægt að skoða þessa heimasíðu betur HÉR.

 
Vina-Dís frá Borg
Skrifađ af Elka   
miđvikudagur, 07 apríl 2010

Fædd 16. júlí 2009
Brún - IS2009281202

F: Hrannar frá Þorlákshöfn (Aðaleinkunn: 8,50)
FF: Orri frá Þúfu (Heiðursverðlaun)
FM: Koltinna frá Þorlákshöfn (1. verðlaun)
M: Spóla frá Krossi
MF: Óður frá Brún
MM: Lyfting frá Viðvík

Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 02 júní 2010 )
Lesa meira...
 
Ţjálfunarferđ
Skrifađ af Elka   
mánudagur, 13 júlí 2009

Við fórum í viku þjálfunartúr með hrossin með Árbakka og Skíðbakka.  Ferðin gekk eins og í sögu nema myndavélin var heldur lítið notuð.  Það eru samt nokkrar myndir komnar í myndaalbúm af íslenski náttúru.  Yfir 100 hross voru í rekstrinum þegar mest var.

 
Snilldarmynd
Skrifađ af Elka   
mánudagur, 13 júlí 2009

Hún er algjör snilld þessi mynd sem pabbi tók af Flóka, mömmu og Guðmundi Óla um helgina.  Þau fylgjast með að aðdáun þegar Flóki tekur stökkið og spurning hvort við ættum ekki að reyna að koma honum á einhverskonar ólympíuleika... hann er allavega kominn með grúppíur sem hvetja hann áfram!

 
Gígja og Spes komnar til Asa frá Lundum
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 09 júlí 2009

Þann 6. júlí fóru þrjár hryssur að heiman áleiðis til stóðhestsins Asa frá Lundum sem dvelst í Ölfusinu þessa dagana.  Tvær hryssnanna eiga afturkvæmt á Borg, þær Gígja frá Neðra-Seli og Spes frá Krossi en ein hryssnanna var seld og fer því með Asa í Borgarfjörðinn að ævintýrinu loknu.  Asi sló eftirminnilega í gegn á fjórðungsmóti þar sem hann hlaut 8,41 í aðaleinkunn sem er engin smá einkunn á 4 vetra klárhest.  Asi er gullfallegur og hæfileikaríkur foli með mikið skref og framgrip.  Óðinn Örn, stóðhestahaldari með meiru, sendi mér þessar skemmtilegu myndir úr hólfinu hjá Asa en á neðri myndinni er Sproti að æfa sig eitthvað... en Sproti er einmitt frændi Asa, undan Auð frá Lundum sem er stóri bróðir Asa.  Sproti er ofboðslega skemmtilegt folald, grípur í allan gang með miklum tilþrifum, reistur og sperrtur og á einhverntímann eftir að lyfta fótum!  Sá sem verður fyrir áreitinu er hann Tindur frá Borg.  Hægt er að lesa meira um Asa og stóðhestahaldið hans Óðins á www.foli.is

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 57 - 64 af 396
Who´s online
Ţađ eru 3 gestir tengdir
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |