Hestaborg.com


Heim
mánudagur, 06 september 2010
Main Menu
Heim
News
Hestar til sölu / Salehorses
Linkar
Rćktun / Breeding
Hestaborg ehf.
Gestabók
Myndaalbúm
Leita á síđunni
Innskráning
Stjórnandi
Hafđu samband / Contact
17.juli 084.jpg
Frjósemin..
Skrifađ af Elka   
ţriđjudagur, 30 júní 2009

Við eigum ennþá eftir að fá slatta af folöldum en það er helst að frétta af frjósemismálum að Gæfa frá Efri-Lækjardal var ekki fengin við Þrist frá Feti og var keyrð til Storms frá Leirulæk í dag.  Bára frá Hellatúni var einnig keyrð í dag undir Þyt frá Neðra-Seli.  Ekki hefur gengið ennþá að koma fyli í 1. verðlauna hryssuna Stöku en eftir tvær árangurslausar tilraunir með Hnokka frá Fellskoti var ákveðið að prófa Straum frá Breiðholti.  Unghryssan Föl frá Hrafnkelsstöðum er í hólfi hjá Þyt frá Neðra-Seli.  Sunna, Hrefna og Perla eru allar hjá honum Bresti okkar frá Lýtingsstöðum.  Eina staðfesta fyl vorsins er hjá henni Ógn frrá Búð sem er fengin við Hruna frá Breiðumörk.  Birta frá Árbæ bíður eftir að komast að hjá Hnokka frá Fellskoti og Gígja frá Neðra-Seli bíður eftir að Asi frá Lundum slái í gegn á fjórðungsmóti :-)

 
Ólöf Rún Íslandsmeistari og Gummsi í parý!
Skrifađ af Elka   
sunnudagur, 28 júní 2009

Þótt það sé lítið um fréttir á heimasíðunni þá merkir það þó ekki að ekkert sé um að vera!  Það er svakalegur kraftur í útreiðum á Borg, þrjár vaskar stúlkur eru í vinnu hjá okkur og yfir 40 hross á járnum. Ólöf gerði sér lítið fyrir og sigraði fimmgang unglinga á Íslandsmótinu í dag, ekki amalegt það enda hörku knapi og hefur séð um þjálfun á henni Toppu sinni í langan tíma.  Guðmundur Óli fékk helgarfrí frá sveitastörfum þessa helgina.  Hann var meira og minna "á ferðinni", heimsótti langafa og langömmu á Laugarvatn ásamt öðrum skyldmennum og skemmti sér konunglega.  Farstjóri var "mamma", bílstjóri var "pabbi", Guðmundur yngri sá um skemmtiatriðin.  Við gamla settið skelltum okkur í Grímsnesið og áttum yndiselga helgi með Þeim Ragga og Helgu á Fossi.  Það eru einhverjar myndir af Guðmundi Óla inná myndaalbúmi frá helginni.

 
Sunna frá Ţorlákshöfn
Skrifađ af Elka   
miđvikudagur, 19 maí 2010

IS2004287197 - Brún

F: Hrannar frá Þorlákshöfn (Aðaleink.: 8,55)
FF: Orri frá Þúfu (Heiðursverðlaun f. afkvæmi)
M: Tinna frá Svignaskarði (1. verðlaun)
MF: Gustur frá Sauðárkróki

Bygging: 7,94

Kastaði brúnni hryssu 6. júní 2010.
Fylfull við Glym frá Flekkudal og ætti að kasta í lok júní 2011.

Síđast uppfćrt ( sunnudagur, 15 ágúst 2010 )
Lesa meira...
 
Laxdal frá Borg
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 18 júní 2009
Fæddur 14. júní 2009
Fífilbleikur - IS2009181202

F: Ómur frá Kvistum (Aðaleinkunn: 8,61)
FF: Víglundur frá Vestra-Fíflholti (1. verðlaun)
FM: Orka frá Hvammi (1. verðlaun)
M: Perla frá Útverkum
MF: Taktur frá Árnagerði
MM: Bylgja frá Hólum

Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 02 júní 2010 )
Lesa meira...
 
Sproti frá Borg
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 18 júní 2009
Fæddur 11. júní 2009
Móálóttur, tvístjörnóttur, hringeygður.

F: Auður frá Lundum (Aðaleinkunn: 8,46)
FF: Gauti frá Reykjavík (1. verðlaun)
FM: Auðna frá Lundum
M: Spes frá Krossi
MF: Orion frá Litla-Bergi (1. verðlaun)
MM: Gná frá Krossi

Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 02 júní 2010 )
Lesa meira...
 
Brestur frá Lýtingsstöđum
Skrifađ af Elka   
fimmtudagur, 03 júní 2010

Brestur frá Lýtingsstöðum

Rauðskjóttur - Fæddur 2004

Faðir: Illingur frá Tóftum (Einkunn: 8,73)
FF: Númi frá Þóroddsstöðum (Einkunn: 8,66)
FM: Hrísla frá Laugarvatni (Einkunn: 8,06)

Móðir: Blíða frá Skíðbakka (Einkunn: 7,91)
MF: Jarl frá Búðardal (Einkunn: 8,10)
MM: Bylgja frá Skíðbakka

Bygging: 8,18
Hæfileikar: 7,83
Aðaleinkunn: 7,97

Síđast uppfćrt ( miđvikudagur, 02 júní 2010 )
Lesa meira...
 
Ungfolar ađ leik
Skrifađ af Elka   
mánudagur, 01 júní 2009

Þeir eru glaðir ungfolarnir að fá að leika sér við frelsið í góðviðrinu.  Það voru fjórir litlir pungar sem sluppu við geldingu að þessu sinni, allavega í bili, sjáum síðan hvernig þeir þroskast í sumar.  En hópurinn er: Hraunar (Hrannar vs. Eldborg), Borgar (2 vetra, Hrímdís vs. Hrannar), Glotti (Staka vs. Hrannar), sá skjótti er frá nágrönnum okkar í Húnakoti en hann er undan Bresti okkar frá Lýtingsstöðum, Prati (2 vetra, Gaumur vs. Perla), Sponni (Hrannar vs. Spes) og Sjarmi (Hnokki vs. Mjallhvít).  Það var lengi verið að stilla upp svona fallegri breiðfylkingu!

 
Meira...
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 65 - 72 af 396
Who´s online
Ţađ eru 4 gestir tengdir
Design by Joomlateam.com | Powered by Joomlapixel.com |