|
Skrifað af Elka
|
|
laugardagur, 23 maí 2009 |
|
Í myndaalbúmi er hægt að nálgast nokkrar frábærar myndir frá sundferð í Hólsánni einn frábæran góðviðrisdag. Eins og sést þegar þrætt er í gegnum myndirnar varð ung hryssa treg á að fara uppá bakkann og ekki vildi betur til en hún sleit sig lausa og ákvað sjálf að hefja sína eigin sundferð niður ánna öllum til mikillar skelfingar. Töluverður eltingarleikur hófst niður með ánni en allt er gott sem endar vel, enda komust allir á þurrt að lokum, nokkuð blautari en lagt var upp með í byrjun en ævintýrið skemmtilegt eigi að síður.
.jpg)
Hvað gerist næst??? Brynjar og Hvönn frá Sauðárkróki með sunddrottninguna Bliku frá Bakkakoti á hælunum, Blika ákvað hins vegar að fresta því að koma uppúr í þetta skiptið!
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
fimmtudagur, 21 maí 2009 |
|
.jpg)
Þau mæðgini Ógn frá Brú og Sjálfur frá Borg eru í menningarferð að hitta fyrir stóðhestinn Hruna frá Breiðmörk. Það er eitthvað í fari Hruna sem heillar og við teljum að Ógn passi vel á kauða, enda hefur hún ekki klikkað á að gefa framfalleg og reisnarleg afkvæmi, oftast stór og aðsópsmikil að auki. Það verður því spennandi að sjá að ári hvernig blandan heppnast.
.jpg)
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
mánudagur, 11 maí 2009 |
|


Annað ástarævintýrið er milli Þrists frá Feti og Gæfu frá Efri-Lækjardal. Gæfu eigum við í samkurli með Guðmundi Pálssyni í Hafnarfirði en Gæfa er gullfalleg hryssa með flott upplit, fótaburð og rými. Gæfa er með 7,90 í aðaleinkunn sem klárhryssa og þau Þristur ættu að passa vel saman.
|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 11 maí 2009 )
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
sunnudagur, 10 maí 2009 |
|
.jpg)
Þessar myndir eru teknar daginn eftir af fyrsta folaldinu okkar, sem hefur hlotið nafnið Sjálfur frá Borg. Það er heldur betur komið annað yfirbragð á hálsinn á kauða, orðinn verulega sperrtur og flottur með háar og flottar herðar. Hann hleypur um á tölti og brokki og virðist ætla að verða hinn glæsilegasti.
.jpg)
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
föstudagur, 08 maí 2009 |
|
.jpg)
Fyrsta folaldið kom í nótt um um hálf fimm leitið. Myndirnar eru teknar um einum og hálfum tíma síðar eða um sex leitið. Eins og lög gera ráð fyrir var snáðinn kominn á lappir og hljóp á eftir móður sinni sem vildi lítið við mannfólkið tala svona allavega í bili. Hryssan heitir Ógn frá Búð og faðirinn er Álfur frá Selfossi. Það var þó einhver misskilningur í gangi því ég var búin að panta hryssu og ef það væri ekki hægt þá ætti folaldið allavega að vera skjótt.... en svona er þetta, óskin rættist ekki en það sem skiptir þó mestu máli er að folaldið er komið á legg og er heilbrigt. Ógn er mjög falleg hryssa og hefur gefið okkur flott folöld, t.d. hana Leikdísi sem sigraði folaldasýningu í Landeyum fyrir tveimur árum síðan og Sómi eldri bróðir hennar varð í öðru sæti árinu áður. Fullt af myndum, kíkið á. Síðan verða að sjálfsögðu teknar aftur myndir eftir c.a. 10 daga þegar það er búið að rétta almennilega úr sér.
|
|
Síðast uppfært ( föstudagur, 08 maí 2009 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
þriðjudagur, 05 maí 2009 |
|
Í sumar verður starfandi tamninga- og þjálfunarstöð á Borg. Við verðum með úrvalsmannskap, næmar og kjarkaðar stelpur sem ætla að hjálpa okkur "gamla fólkinu" við tamningu og þjálfun. Á Borg eru frábær aðstaða til tamninga og útreiða, góð inniaðstaða, hringgerði og frábærar útreiðaleiðir. Hestaborg hefur sérhæft sig mest í sölu á hrossum og í sumar verður ekkert lát þar á, það er von á umtalsverðri traffík af erlendu hestafólki og við vonumst til að vera með gott úrval af góðum hrossum til sölu. Ef áhugi er á að senda hross í umboðssölu eða undirbúning fyrir sölu, þar sem lagfæra þarf einhver atriði er um að gera að hafa samband. Þar sem hefur verið mikil hækkun á verði á spónum og heyi höfum við ákveðið að lækka mánaðargjald í sumar niður í 40.000 kr. + vsk. járningar eru ekki innifaldar í því verði. Og til að auðvelda fólki sem þarf að koma hesti í tamningu eða þjálfun verður hægt að skipta hverjum mánuði í tvennt, þ.e borga einungis 20.000 + vsk á mánuði.

|
|
|
Skrifað af Elka
|
|
mánudagur, 04 maí 2009 |
|
Jæja, þá er það fyrsta ástarævintýri vorsins. Staka frá Stóra-Hofi og Hnokki frá Fellskoti áttu góða stund í dag! Það er ekki ólíklegt að úr þessi komi mikill töltari ef allt gengur að óskum. Staka er með frábært tölt, enda undan 1. verðlauna tölthryssunni Vöku frá Stóra-Hofi (úrslit á Landsmóti) og því systir Tuma frá Stóra-Hofi (fullt fullt af sigrum!). Hnokki hefur síðan verið að brillera á töltvellinum þrátt fyrir að vera einungis á sjötta vetur. Vonum það besta!

.jpg)
|
|
Síðast uppfært ( mánudagur, 04 maí 2009 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 73 - 80 af 396 |