|
Skrifađ af Elka
|
|
miđvikudagur, 30 júní 2010 |
|
.jpg)
Já hún er heldur betur lík pabba sínum þessi flotta snót. Faðirinn Stæll frá Neðra-Seli, Stálasonur, er óvenjulega hreyfingarmikill hestur og það er hún Hraundís líka, hleypur um með mikilli skrefstærð, rými og fótaburði, og er auk þess, reyndar líkt og báðir foreldrar, einstaklega spök og meðfærileg. Við geymdum veturgömlu hryssurnar heima í stað þess að senda þær uppá Safamýri í vor. Ástæðurnar tvær, yfirvofandi öskufall og hestapest og þar sem þær eru nú ekki miklir bógar vildum við hafa þær innan seylingar. Hún Hraundís gæti þó alveg verið eldri, stór, þroskamikil og spikfeit!
En af öðru er það að frétta að við erum farin að skríða af stað með útreiðar, nokkur hross komin heim á hús og verið að sigla þeim hægt og rólega í þjálfun. Við vonum síðan það besta!
|
|
|
Skrifađ af Elka
|
|
ţriđjudagur, 22 júní 2010 |
|
.jpg)
Það er lítið riðið út á Borg og því miður eru að okkar mati alltof mörg hross ennþá að ná sér af pestinni. Við erum búin að vera í stopp núna í c.a. 7 vikur og ennþá er mikið um hóst og nefrennsli. Við höfum þó ekki enn fengið "veikt" hross, þ.e. hita eða mikla slímmyndun í nefi enda langflest hrossin búin að vera úti lengi. En hóstinn er ennþá í meiri hluta hrossanna og við erum að reyna að finna hesta sem hægt er að byrja að þjálfa, en margir hafa hóstað þegar við hringteymum þá eða tökum þá á hús og fá þá að sjálfsögðu lengra frí.
Þær Marita og Fredrica héldu til síns heima í morgun eftir að hafa verið hjá okkur í c.a. 9 mánuði. Þær ætluðu upphaflega að vera framyfir Landsmót en þar sem ekkert er Landsmótið fóru þær eilítið fyrr, enda lítið um að vera undir þessum kringumstæðum. Fredrica kemur hins vegar aftur til okkar í haust og stefnir á Hóla haustið 2011. Það er óneitanlega hálf tómlegt enda voru þær hluti af fjölskyldunni.
Á myndinni er Kyndill frá Lýtingsstöðum að leika sér í grasinu en hann er ennþá að glíma við hóstann, en er að öðru leiti eldsprækur.
|
|
|
Skrifađ af Elka
|
|
ţriđjudagur, 22 júní 2010 |
IS2010181204 - Brúnskjóttur
Fæddur 19. júní 2010 - BLUB: 103
F: Brestur frá Lýtingsstöðum
FF: Illingur frá Tóftum (1. verðlaun)
FM: Blíða frá Skíðbakka 3
M: Hrefna frá Kálfholti
MF: Sómi frá Kálfholti
MM: Glæða frá Kálfholti
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifađ af Elka
|
|
ţriđjudagur, 08 júní 2010 |
IS201028120. - Brún
Fædd 5. júní 2010 - BLUB: 111
F: Brestur frá Lýtingsstöðum
FF: Illingur frá Tóftum (1. verðlaun)
FM: Blíða frá Skíðbakka 3
M: Sunna frá Þorlákshöfn
MF: Hrannar frá Þorlákshöfn (1. verðlaun)
MM: Tinna frá Svignaskarði (1. verðlaun)
|
|
Síđast uppfćrt ( ţriđjudagur, 22 júní 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifađ af Elka
|
|
ţriđjudagur, 08 júní 2010 |
|
Í síðustu viku sluppu ungfolarnir okkar (1-2 vetra) útúr hólfinu sínu og héldu á vit ævintýranna, flestir voru gómaðir fljótlega og komið í annað hólf, en örfáir voru þó á "eigin vegum" að vonast til að njóta samvista við einhverjar hryssur. Við vorum svo heppin að hafa tekið alla þessa fola inn þegar öskufall vofði yfir okkur og því voru þeir allir búnir að fá á sig múl og læra að teymast. Þessa kom sér einstaklega vel við þessar aðstæður :-) Ég náði þessari skemmtilegu myndasyrpu af honum Glotta sem fékk smá hugdettu þegar múllinn var á og ætlaði að tékka á því hvort hann væri í alvörunni fastur við þetta mannfólk!
.jpg)
.jpg)
.jpg)
|
|
|
Skrifađ af Elka
|
|
miđvikudagur, 02 júní 2010 |
|
IS2010281201 - Rauðstjörnótt
Fædd 29. maí 2010 - BLUB: 113
F: Erill frá Ásbrú
FF: Stáli frá Kjarri (1. verðlaun)
FM: Samba frá Miðsitju (1. verðlaun)
M: Eldborg frá Búð
MF: Glitnir frá Strandarhöfði (1. verðlaun)
MM: Björk frá Mel
|
|
Síđast uppfćrt ( laugardagur, 07 ágúst 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifađ af Elka
|
|
sunnudagur, 30 maí 2010 |
|
.jpg)
Þá er fyrsta folaldið komið í heiminn sem er í okkar eigu en það var hún Eldborg sem reið á vaðið og kom með hryssu undan Eril frá Asbrú, sem er þriggja vetra foli undan Stála og Sömbu frá Miðsitju. Við erum ferlega ánægð með þessa litlu dömu sem er rauðstörnótt, með vel settan og fallegan háls og hleypur um á tölti. Nokkrum dögum áður kom unghryssan Föl með fallega moldótta hryssu undan Þyt frá Neðra-Seli, en Föl er í eigu Janne Teksle í Noregi.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 9 - 16 af 396 |